fimmtudagur, apríl 03, 2003

Gamalt fólk og tölvur.... passar ekki saman!
Hver fann eiginlega upp mánaðarmót.... frekar leiðinleg! En í dag er fimmtudagur sem þýðir að það er glaumbar í kvöld. Er samt að hugsa um að fara líka á kaffihús og kanski í biljard, ef að einhver fæst til að koma með mér! c",) Það verður bara gaman.

miðvikudagur, apríl 02, 2003

Það er alltaf einhver þrýstingur á mig að reyna að setja eitthvað hérna inn... fólk segir að ég standi mig ekki nógu vel í því. Búin að lenda í alveg heljarinnar basli með þetta. Held að það sé ekkert skemmtilegt búið að gerast hjá mér í dag, nema það að ég vaknaði alveg ofurkát... og þeir sem að mig þekkja vita að það gerist nú ekki á hverjum degi... gaman að því. Fór á kaffihús í gær og hitti þar hana Sigrúnu sem er að vinna með mér og Helgu vinkonu hennar og hann Pétur... hann er algjört æði... en á kærustu, sem er ekki nógu skemmtilegt!