föstudagur, október 17, 2003

Þá er enn önnur helgin gengin í garð og mikið planað framundan... ætlaði nú að vera róleg þessa helgi, en það er of mikið sem að freistar! c",) Byrja allavegana á því að fara beint úr vinnunni svona hálf fimm út í Eimskip þar sem er eitthvert staffapartý, enhverjir leikir og svoleiðis, og frír bjór... svo verður diskó fram eftir kvöldi og síðan kemur strætó og skuttlar okkur á Players þar sem að Brimkló verður að spila, og að sjálfsögðu er þetta allt í boði Eimskipa, ekki amarlegt það! Reyndar er líka annað partý sem okkur er boðið í hjá Sindra-Stáli... allt að gerast í sömu götunni... en það byrjar nú ekki fyrr en 18:00, ætli maður kíki ekki þangað líka... Maður er svo ómissandi allsstaðar, þetta er alveg ótrúlegt! (og fyrir þá sem ekki heyrðu þá breyttist röddin þegar að ég sagði þetta) c",)
Nú svo á morgun er partý hjá henni Helgu og maður verður nú að kíkja í það líka... bissý voman! Æ annars er ég að hugsa um að slappa af þar á milli!
Úps en ég gleymdi nú að segja að ég er að fara að æfa fótbolta með liðinu FC Flytjandi og haldið þið ekki að æfingarnar eru haldnar um hádegi á laugardagsmorgnum... það er greinilega ekki gert ráð fyrir að fólk djammi sem er í þessu liðið! c",) en það verður bara gaman! Maður kemst þá á lappir einhverntíman fyrir tvö á laugardögum!!!