miðvikudagur, september 03, 2003

Djamm á föstudaginn með Sigrúnu Lenu, Helgu Björg og Kollu... Fórum á gaukinn og á glaumbar og hittum Jóa sóðabrók og Munda... stráka sem við kynntumst á Dönskum dögum... djammað og djúsað fram undir morgun og fórum svo heim í partý eftir það... Sigrún og Mundi voru eitthvað að dúllast en þegar að hún hitti hann kvöldið eftir lét hann sem að hann sæi hana ekki... hvað er það??? En svoldið fyndi! Já við fórum semsagt að djamma kvöldið eftir... Kónga hélt vinnupartý heima og við Sigrún fengum að vera með... það er ekkert smá skrýtið þetta fólk sem er að vinna með henni, en þrátt fyrir það þá var mjög gaman og ég missti mig aðeins í eplasnafsflöskunni, úpps! Var semsagt á herðablöðunum og var aðeins að láta ljós mitt skína á Gauknum... ekkert sem ég vil fara nánar út í hér, en skemmtileg saga þrátt fyrir það! c",) Sunnudagur eða öðru nafni þynkudagur var ekki góður hjá mér, svaf til 18:00 en þá var ég vakin til að fara út að borða og síðan fór ég á Grease...