mánudagur, september 15, 2003

1...2...3...4 dagurinn sem að ég er hætt að reykja, ég er alveg ólýsanlega stolt af sjálfri mér, hvernig er annað hægt??? Mér tókst meira að segja að fara út að skemmta mér um helgina og ekki reykja neitt, þorði reyndar ekki að drekka, þannig að ég var bara edrú... sem var mjög gott... Fór samt til mömmu á föstudaginn í mat og dekur! c",) Kíkti svo í bíó á laugardaginn á stórmyndinda Bandarísk baka, brúðkaupið... mér fannst hún æði, reyndar fyrri myndirnar líka!