fimmtudagur, ágúst 28, 2003

Vá hvað ég er pirruð í dag, mætti halda að ég væri með fyrirtíðarspennu eða eitthvað, en það er ekki svo gott!!! Það er alveg ótrúlegt með þetta fólk í þessu fyrirtæki, það reyna allir að losna undan skítverkunum sínum og koma þeim yfir á okkur á skrifstofunni, og viti menn... það tekst nánast alltaf! Ótrúlegt alveg! :( Þannig að í dag er bara pirringur!

þriðjudagur, ágúst 26, 2003

Dagurinn í dag er betri en sá í gær... ég byrjaði daginn á því að fara í vinnuviðtal... það er svo fyndið að þurfa að vera með einhverja egó ræðu um sjálfan sig... mín var allvegana helv... góð! c",) en hvort ég fæ vinnuna eða ekki veit ég ekkert um!!! Fólk er misjafnt eins og það er margt og það er ein stelpa í vinnnunni minni sem er alveg jólasjúk... hún byrjar á því í febrúar að telja niður í jólinn og sendir öllum póst um það, í dag er hún að leita að jólalögum, I don´t know why... en mér finnst það svoldið findið! c",) Jólin koma, jólin koma... en það eru allavegan 120 dagar til jóla!!!

mánudagur, ágúst 25, 2003

ÆÆÆ erfiður dagur í dag... það var strákur úr vinnunni minni sem lét lífið í slysinu á Borgarfjarðarbrúnni í dag, þetta er alveg hræðilegt! Þegar að eitthvað svona gerist fer maður alltaf að hugsa, hvað ef og hvað ef! En við því er nú víst ekkert svar! :´(