fimmtudagur, júní 26, 2003

Blogg hvað??? búið að vera brjálað að gera í vinnunni núna í langan tíma svo ég hef ekki haft tíma til að skrifa neitt... kannski mest lítið um að skrifa.... en allavegana það nýjasta á döfinni er að það er fótboltaæfing í kvöld, sú síðasta fyrir leikinn... og ó mæ gad, ég er ekkert smá léleg í fótbolta þannig að ég efast um að fái að spila með, en það kemur í ljós í kvöld... kannski fæ ég bara að vera lukkudýrið eða eitthvað! Það á eitthvað að kíkja út á lífið í kvöld, á Glaumbar held ég, það eru einhverjir nossarar í heimsókn hjá systu... Svo er þrusudjamm annað kvöld, partý heima fyrst og síðan liggur leiðin á Nasa þar sem Á móti sól eru með útgáfupartý og við fáum nokkra miða á það, þannig að það verður stemning! Svo á laugardaginn er fótboltamótið á móti Landflutningum, leikurinn hefst 14:30 og er spilað á velli í Laugardalnum... allir að koma að horfa! Síðan eftir það er grill og djamm á eftir í vinnunni... hlakka svakamikið til... En takk Íris fyrir gestabókina... hún kemur sér alveg svakalega vel og vona að allir skrifi í hana!

Bless takk og ekkert snakk
Berglind