laugardagur, júní 07, 2003

Nú er ég búin að vera í sumarfríi og hef þessvegna ekkert getað skrifað... en eins og við var að búast þá er búið að vera skítleiðinlegt veður allt fríið mitt, byrja semsagt að vinna aftur á þriðjudaginn og þá þori ég að veðja að við verði að búast að fá Spánarveður! Það er nú margt búið að gerast síðan síðast... ég er tildæmis komin með comment sem að ég er mjög ánægð með... já takk Íris fyrir það! c",} Svo gerðist svoldið leiðinlegt í gær... var semsagt á leiðinni á kaffihús og bíllinn minn bara dó... GRENNJJJJ þannig að það er spurning að fara að fjárfesta í nýjum bíl! En núna er ég hjá mömmu í Hveragerði í afslöppun... Hótel Mamma er best, maður fer að velta fyrir sér afhverju manni datt eiginlega í hug að flytja að heiman!