föstudagur, ágúst 22, 2003

Ég verð nú að segja eitt... eiginlega að monta mig, meðan að bíllinn minn er búinn að vera dauður er ég búin að taka þrisvar sinnum strætó!!! Aldrei hefði ég trúað því upp á mig! c",) En ég er voðalega stolt!!!
Ohhh er búin í sumarfríi og byrjuð að vinna aftur... Ég er búin að gera alveg heilan helling í fríinu mínu... meðal annars fór ég á þjóðhátíð í Eyjum, bæði í skemmti og menningarferð... var þar í fimm daga og það var alveg æðislegt... svo fór ég líka í Hólminn á danska daga... i den herlige danske dage, de singer og har det godt! Það var líka voðalega gaman þar... Grill í garðinum hjá pabba, heill hrútur settur á tein og svo étið og sungið og dansað... svo var að sjálfsögðu bryggjuball og annað ball og enn annað ball! Allavegana þá nenni ég ekki að telja upp meira sem ég gerði í þessu blessaða frí, nema ég svaf svona 60% af því, zzzzzzzz c",)
En í dag er föstudagur sem að kallar á helgarfrí, vuhhúúú... þá ætla ég að fara að heimsækja hana múttu mína í Hveró, þar eru sko Blómstrandi dagar, ég held að ég sé að verða djamm sjúk!!!