föstudagur, maí 02, 2003

Vá hvað ég elska svona auka frídaga... gera ekki neitt, liggja upp í sófa og horfa á Glitter... PJÚK... talandu um að eiga ekkert líf! En allavegana þá er lokað fyrir helv... heita vatnið hjá mér og búið að vera það síðan á þriðjudag, lekur eitthvað rör í veggnum, þannig að ég verð að fara í ræktina einusinni til tvisvar á dag! Úfff það er erfitt, en þar sem að ég er bara svona í korter á hlaupabretti og fer síðan í sturtu þá er ég ekki alveg dauð... en fór í spinning á miðvikudaginn... og þvílíkt helvíti... þetta er eina sjálfsfróun sem leyfð er á almannafæri... gekk út eftir tíu mínutur! Kanski eru bara einhleypar stelpur sem ekkert fá sem að fara í þessa tíma, ég veit ekki! En ég er allavegan ennþá aum! c",) Fór að djamma á miðvikudaginn... hituðum upp heima... Kónga, Sigrún Lena og Sigrún Jóna, Inga, Kolla, Helga, Birna, Eyrún og Magni... síðan fórum við á ball með Á Móti Sól á Gauknum, frekar fáir niðri í bæ... en þeir eru svakalega skemmtilegir! Og síðar er spurning hvort að það sé ekki bara Skítamórall í kvöld, á Gauknum! Mörg ár síðan að maður hefur farið á ball með þeim.... þeir eru æði! c",) Tungulipur og leðurklædd og langar bara að vita, hvernig er að komast nærri þér......

mánudagur, apríl 28, 2003

Góðan daginn... páskafríið búið og ég hef ekkert skrifað alveg heilllengi, enda búið að vera brjálað að gera í vinnunni! Það er margt að gerast... Vil bara segja frá því að ég fékk deit um páskana, og súkkulaðið hjálpaði ekkert til með það... Núna er ég farin að semja ljóð aftur og ætla að gefa út ljóðabók í svona 3 eintökum... Ég er alveg hræðileg í að semja ljóð, skrifa bara einhverja vitleysu, en ég hef gaman af þessu og það er það sem að máli skiptir... Svo var mér bent á eina heimasíðu hjá strák sem að kíkti inn á bloggið mitt og skrifaði aðeins um mig... fyrirsögnin var BITTA OG RÓNI? Hhmmm hvað segir það nú um mig, allavegana þá ætla ég bara að kópera þessa grein, af því að mér fynnst hún alveg sprenghlægileg....

Bitta og róni?
Ég sit hérna og geri ekkert í vinnunni. Hann Jón Arnar skrapp aðeins í bæinn og ég sit yfir símanum á meðan. Ég fór inn á netið og endaði á bloggsíðu sem einhver stelpa á. Stúlkan kallar sig Bebbu. Hef ekki nánari skýringu á þessari stelpu, hef hvorki séð mynd af henni né neitt annað sem tengist henni. Af blogginu að dæma þá er þessi stelpa mikið að leita sér að karlmanni (minnir helst á bloggin þegar ég var í leit að kvennmanni) en auk þess sér maður greinilega að þessi stelpa hugsar um lítið annað en áfengi og djamma. Sem sagt áfengi, djamm og strákar.
Svo er spurningin, ef þetta er stelpa að leita sér að karlmanni og ekkert gengur, er hún þá svona ljót eða leiðinleg?
Ef einhver veit hver þetta er þá endilega sendið mynd til mín
Hún segir reyndar að það sé mynd af sér inn á djamm.is en jább, það eru líka svona 1000 aðrar kellingar þar.

Og þar hafið þið það... ég fór nú að velta þessu aðeins fyrir mér með þetta og komst að því að ég er orðin algjör bytta, það er alveg satt... og þetta strákadæmi að ég sé endalaust að leita... það er allt í kjaftinum á mér... jú jú mér finnst gaman að deita en ekkert meira en það... miðað við þessa karlmenn sem að ég hef lent á þá kæri ég mig ekki um að vera í sambandi! Kommon hver gleymir að segja kærustunni sinni frá því að hann búi hjá annar kærustu.... ENGIR KARLMENN FYRIR MIG TAKK! Já ég semsagt ákvað það að hætta í karlmönnum og snúa mér alfarið að brennivíni, og það skýrir þetta endalausa djamm á mér...